Gæti fært fötluðum mikla réttarbót

Stjórnvöld ætla að fullgilda samning Sameinuðu þjóðana um réttindi fatlaðs fólks á vorþingi 2013. Það gæti tryggt fötluðu fólki réttarbætur sem það hefur beðið eftir árum saman.

Ný framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólk hefur verið samþykkt í ríkisstjórn og mun Alþingi fjalla um hana í formi þingsályktunartillögu. Þar er lögð fram stefna til ársins 2020 og tillaga að framkvæmdum næstu þriggja ára. Á þeim tíma á að ljúka endurskoðun laga um málefni fatlaðs fólks. Lögin voru reyndar nýlega endurskoðuð og hefur verið gagnrýnt að ný lög tryggi ekki nauðsynlegar réttarbætur. Þetta gæti bætt réttarstöðu fatlaðs fólks sem á samkvæmt núgildandi lögum enga heimtingu á tafarlausum aðgengisúrbótum á eldri opinberum byggingum. Samkvæmt lögum dugir að gera áætlun um úrbætur. Í tillögu að nýrri framkvæmdaáætlun er eins og í núgildandi lögum, aðeins talað áætlun um bætt aðgengi og að úttekt á aðgengismálum skuli lokið á þessu ári. Tímamörk á aðgengisúrbótum eru ekki nefnd og ekki heldur hvort til standi að bæta úr því við boðaða endurskoðun laga. Hinsvegar segir að fullgilda skuli samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks með frumvarpi á vorþingi 2013. Þar er talað um viðeigandi aðlögun til að bæta aðgengi og því gæti lögfesting samningsins lagt skyldur á herðar hins opinbera að laga aðgengi að eldri opinberum byggingum. Það kemur svo í ljós þegar samningurinn verður innleiddur hvort tímamörk verða sett á þær framkvæmdir.

Helga Baldvins- og Bjargardóttir, réttindagæslumaður fatlaðs fólks í Reykjavík og á Seltjarnarnesi, telur aðgerðaáætlun jákvætt skref enda þurfi að lögfesta réttindi fatlaðs fólks. „Lögin sem eru núna eru þjónustulög ekki réttindalög, það er að segja lög um málefni fatlaðra. Það er hægt að skerða þau með vísun til þess að það séu ekki til nægjanlegir peningar og svo framvegis. Það vantar skarpari jafnréttislöggjöf sem bannar mismunun þannig að fatlað fólk geti leitað réttar síns ef á því er brotið vegna fötlunar eins og til dæmis varðandi aðgengi.“

Rétt er að taka fram að tillagan að aðgerðaráætlun tekur á ýmsum hagsmunamálum fatlaðs fólks hvað snertir atvinnu, sjálfstæði, heilbrigði, ímynd og fræðslu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka