Fyrstu niðurstöður úr flugvélinni

Þýska könnunarflugvélin.
Öskumagn í lofti yfir Reykjanesskaga er talsvert undir viðmiðunarmörkum fyrir flugumferð. Þetta sýna fyrstu niðurstöður úr flugi þýskrar rannsóknarvélar sem flaug á þessum slóðum í gærkvöldi.
Haraldur Ólafsson, prófessor í veðurfræði, hefur umsjón með þessu verkefni en flugvélin sem er frá þýsku loftrannsóknarmiðstöðinni kom til landsins í gær. Aska var mæld á leiðinni hingað, frá Færeyjum upp að Suðausturlandi og magn hennar á þeirri leið var einnig undir viðmiðunarmörkum, segir Haraldur. Næsta flug vélarinnar verður á morgun og fer hún suður og austur fyrir landið. Gert er ráð fyrir að rannsóknarvélin verði hér fram á sunnudag.

Fyrstu niðurstöður í könnunarflugvélinni. Guli og græni flekinn sýnir öskuna en línuritið teiknar upp þversnið af lofthjúpnum á leiðinni frá Færeyjum upp að Suð-Austurlandi. Á lóðréttum ás er hæð og öskumagn. Á láréttum ás er tími og um leið vegalengd þar sem mælitækið er á ferð.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







