Fyrirætlanir Rarik í uppnámi

Öll virkjanaáform Rarik stöðvast verði tillaga að þingsályktun um verndun og nýtingu virkjanakosta á Íslandi samþykkt. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri fyrirtækisins, segir að það hljóti að vera mistök að setja virkjanaáform í Hólmsá í bið.

Fyrir helgi var kynnt tillaga að þingsályktun um verndun og nýtingu um 70 náttúrukosta á Íslandi. Náttúruverndarsamtök Íslands hafa gagnrýnt að fleiri kostir séu ekki settir í biðflokk þar sem upplýsingar vanti til að taka endanlega ákvörðun um nýtingu. Orkufyrirtækin hafa verið á öndverðum meiði. Í hádegisfréttum gagnrýndi forstjóri HS Orku að virkjanakostir sem fyrirtækið skoði hafi verið settir í biðflokk.

Rarik hefur varið um 300 milljónum króna í rannsóknir á Héraðsvötnum, í Grændal og í Hólmsá. „Einn kosturinn fer í verndun og hinir tveir í bið samkvæmt þessum tillögum,“ segir Tryggvi. „Þannig að það svona dregur úr okkur þó við trúum varla að Hólmsá eigi heima í biðflokki en það er a.m.k. sú framsetning sem við sjáum núna.“

Tryggvi segir Rarik áforma að andmæla flokkuninni í umsögn um tillöguna. „Okkur finnst að það hljóti bara að vera einhver mistök þarna. (...)  Við hefðum talið eðlilegt að þetta hefði farið í nýtingarflokk og erum undrandi á að svo sé ekki. Svo við munum gera athugasemdir við það já,“ segir Tryggvi.




Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku