Furða sig á ummælum

Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna í Kópavogi furða sig á ummælum bæjarfulltrúanna Rannveigar Ásgeirsdóttur og Hjálmars Hjálmarssonar þar sem þau reyni að þvo hendur sínar af ákvörðun um uppsögn bæjarstjórans.
Allir á fundi meirihlutans 12 janúar hafi verið sammála um oddviti Samfylkingarinnar skyldi ræða við bæjarstjóra næsta dag um starfslok.
Fullyrðing Rannveigar um að bæjarstjóra hafi verið gert erfitt fyrir innan fyrri meirihluta sé sett fram í því skyni að taka undir dylgjur um að oddviti Samfylkingarinnar hafi markvisst grafið undan bæjarstjóranum til að komast sjálf í bæjarstjórastólinn, en slíkt sé fjarri lagi.
Segir í yfirlýsingu bæjarfulltrúanna að aldrei hafi pólitískur bæjarstjóri verið gerður að ásteytingarsteini í viðræðum um meirihluta í bænum. Það sé reyndar umhugsunarefni að þegar kona sækist eftir bæjarstjórastóli þá sé hún valdagráðug frekja en þegar karl eigi í hlut þá sé það fyllilega eðlilegt.
Rannveig hafi haldið fast í það í fyrri meirihluta að bæjarstjórinn skyldi vera ópólitískur, en það hafi ekki tekið hana margar klukkustundir svíkja það loforð sitt þegar karlinn Ármann heimtaði starfið.
Þá sé það út í hött að ekki hafi verið annar kostur í stöðunni en mynda meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Samfylkingin, Vinstri græn og Framsóknarflokkur hafi boðið Lista Kópavogsbúa a.m.k. tvívegis í samstarf.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Gunnar Birgisson ekki í bæjarráði
Nýr meirihluti í Kópavogi





