Framúrskarandi fyrirtæki

Álverið í Straumsvík.

Medis, Alcan á Íslandi hf og Össur fengu í dag viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur frá Creditinfo. Þessi þrjú fyrirtæki eru efst á lista 245 fyrirtækja sem standast styrk og stöðugleikamat Creditinfo.

 32 þúsund fyrirtæki eru skráð í hlutafélagaskrá. Niðurstöðurnar byggja á ítarlegri greiningu félagsins og meðal skilyrðanna er  að félögin hafi skilað ársreikningum og sýnt jákvæðar ársniðurstöður þrjú ár í röð og eignir fyrirtækjanna séu meiri en áttatíu milljónir.  Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra, veitti fyrirtækjunum þremur verðlaun við athöfn á Hótel Sögu í dag. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Viðskipti

Tilkynna um bilaða upptöku