Mest lesið á RÚV
Sarpurinn

Kvöldstund með listamanni: Gunnar Eyjólfsson
28/11/2016 - 22:20
Veðurfréttir
28/11/2016 - 22:15
Tíufréttir
28/11/2016 - 22:00
Samfélagið
Vottun landbúnaðarframleiðslu. Skák. Stjórnmál í Þýskalandi.29/11/2016 - 12:55

Dánarfregnir
29/11/2016 - 12:50
Veðurfregnir
29/11/2016 - 12:45
Krakkafréttir
28. nóvember 201628/11/2016 - 18:50

Unnar og vinur
Fanboy & Chum Chum28/11/2016 - 18:24

Babar og ævintýri Badou
Babar and the Adventures of Badou28/11/2016 - 18:01
Framsókn fékk umboðið vegna loforða sinna
Richard Quest, fréttamaður á CNN, kynnti forsetann með miklum tilþrifum á sviðið í LSE. Hann sagði Ólaf Ragnar einn af risum samtímans hvort sem fjallað væri um alþjóðaefnahagsmál eða stjórnmál. Hann hefði þar að auki leitt þjóð sína í gegnum einar mestu þrengingar sem nokkur þjóð hefði þurft að glíma við.
Ólafur Ragnar sagði aðspurður um stjórnmálaástandið að Framsóknarflokkurinn hefði unnið athyglisverðan sigur í Alþingiskosningunum. Flokkurinn hefði lofað að taka á skuldavanda heimilanna og að beita hrægammasjóðina, eins og forsetinn kallaði vogunarsjóðina, þrýstingi svo þeim takist ekki að græða óhóflega á íslenska bankahruninu. Af þessum sökum hafi hann ákveðið að veita formanni flokksins umboð til stjórnarmyndunar.
Ólafur segir að íslensk stjórnvöld hafi farið aðra leið en stjórnvöld margra annarra ríkja, hér hafi niðurskurði og aðhaldi ekki verið beitt eins grimmilega og víða annars staðar og áhersla lögð á að verja velferðarkerfið. Þetta sé ein ástæða þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi kannski lært meira af Íslandi en Ísland af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.


