Framkvæmdir á Grundartanga

Byrjað verður að byggja fjögur þúsund fermetra hús undir endurvinnslufyrirtækið GMR á Grundartanga í næstu viku. Skessuhorn segir frá því að áætlað sé verksmiðjan taki til starfa á fyrri hluta næsta árs.

Ársframleiðslan verði til að byrja með 30 þúsund tonn, sem veita muni 20 manns atvinnu, auk þess sem um 40 manns munu starfa við að reisa verksmiðjuhúsið sem verður byggt á stálgrind. GMR ætlar að endurvinna stál úr brotamálmi, að drjúgum hluta frá álverunum í landinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Vesturland

Tilkynna um bilaða upptöku