Framhaldið gæti ráðist í dag

Það kann að ráðast í dag hvort Sjálfstæðisflokkur annars vegar og Samfylkingin og Vinstri-græn hins vegar hefji formlegar viðræður um myndun nýs bæjarstjórnarmeirihluta í Kópavogi.

Fulltrúar flokkanna ræddu saman fyrir helgi og í gær ræddu þeir við bakland sitt. Þegar niðurstaðan liggur fyrir um vilja flokksmanna verður svo tekin ákvörðun um hvort formlegar viðræður hefjast. 

Sjálfstæðisflokkur á fjóra bæjarfulltrúa, Samfylking þrjá og Vinstri-græn einn. Nýr meirihluti nyti því stuðnings átta af ellefu fulltrúum í bæjarstjórn ef af yrði. Það flækir málin þó eitthvað að ýmsir innan Sjálfstæðisflokks hafa viljað semja við Samfylkinguna eins og telja ekki þörf á aðkomu Vinstri-grænna að nýjum meirihluta. Samfylkingarfólk og Vinstri-græn kveðast hins vegar staðráðin í að semja saman við sjálfstæðismenn.

Auk þessara þriggja flokka situr í bæjarstjórn einn fulltrúi fyrir hvert þriggja framboða, Framsóknarflokk, Lista Kópavogsbúa og Næst besta flokksins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka