Fram vann stórsigur á FH

Fram brustaði FH í kvöld - Mynd: Eva Björk

Fram tók á móti FH í fyrsta leik tíundu umferðar úrvalsdeildar kvenna í handknattleik í kvöld og voru það heimakonur sem unnu 20 marka sigur 35-15 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-8.

Elísabet Gunnarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Fram og Sunna Jónsdóttir sjö mörk en þær Steinunn Snorradóttir, Kristrún Steinþórsdóttir og Ingibjörg Pálmadóttir voru allar með þrjú mörk fyrir FH.

Umferðinni lýkur með þremur leikjum á morgun. ÍBV tekur á móti Val í Vestmannaeyjum, Grótta fær Hauka í heimsókn á Seltjarnarnes og KA/Þór mætir HK á Akureyri.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku