Fram í efsta sæti ásamt Val
Fyrst birt: 31.01.2012 22:39, Síðast uppfært: 31.01.2012 23:08

Úr viðureign Fram og Vals fyrr í vetur - Mynd: Eva Björk
Einn leikur var í úrvalsdeild kvenna í handknattleik í kvöld þegar HK tók á móti Fram í Digranesi í Kópavogi og voru það gestirnir úr Fram sem unnu þriggja marka sigur 23-20 eftir að hafa verið einu marki undir í hálfleik 12-11.
Brynja Magnúsdóttir var markahæst í liðið HK með fimm mörk en Stella Sigurðardóttir skoraði mest fyrir Fram eða tíu mörk.
Valur og Fram eru efst í deildinni með 16 stig en HK og ÍBV koma næst með 12 stig. Stjarnan er með 10 stig í fimmta sæti og Haukar í sjötta sæti með 6 stig, þá Grótta og FH með 3 stig og KA/Þór er í neðsta sætinu með 2 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







