Fráleitt að eyða 1.400 milljónum í Hörpu

Harpa í Reykjavík. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir


  • Prenta
  • Senda frétt

Fráleitt er að verja fjórtán hundruð milljónum til viðbótar til tónlistarhússins Hörpu þegar glímt er við margvíslegan vanda í opinberum rekstri. Þetta segir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Viðhaldsmál margra skóla í borginni eru í ólestri auk vanda Landspítalans.

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur lagt það til við borgarráð að Harpa fái 160 milljónir króna á ári næstu fjögur árin í viðbótarframlag frá ríki og borg, samtals 640 milljónir. Jafnframt að eigendalánum uppá 794 milljónir verði breytt í stofnframlög til að afstýra því að Harpa fari í þrot. Samtals nema þessi framlög rúmum 1.400 milljónum. Tillögunni var frestað á síðasta fundi borgarráðs og verður tekin fyrir á þriðjudag.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að þegar ákveðið hafi verið að hefja að nýju framkvæmdir við tónlistarhúsið árið 2009 hafi forráðamenn hússins fullyrt að milljarðarframlag á ár myndi duga.  „Ég held að það sé ljóst að það stendur ekki steinn yfir steini í þeirri áætlanagerð. Mér finnst bara alveg fráleitt að setja meira fé í þetta hús,“ segir hann. „Við eigum við margvíslegan vanda að glíma í opinberum rekstri. Við sjáum vandann á Landspítalanum og margvíslegan vanda í borginni.“ Viðhaldsmál margra skóla í borginni séu í ólestri svo dæmi séu tekin. „Þannig að við sjáum þegar hið opinbera ræður varla að sinna lögbundinni þjónustu og þarf að skera niður framlög til þeirra þá er ekki vandamál að búa til einn og hálfan milljarð í viðbót í verkefni eins og Hörpuna.  Mér finnst það bara sorglegt,“ segir Kjartan.

Kjartan segist ítrekað hafa óskað eftir upplýsingum frá meirihlutanum í borginni um heildarkostnað við Hörpu en aðeins fengið uppgefið hve miklu hafi verið varið eftir 2009, eða rúmum sautján milljörðum. Erfitt sé fyrir sig að fullyrða um hver heildarkostnaður sé. „En hann er ekki undir 30 milljörðum,“ segir Kjartan. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku