Forseti Íslands heiðraður

Ólafur Ragnar tekur við heiðursverðlaununum úr hendi Jim Corr
Forseti Íslands hlaut í gær heiðursverðlaun fyrir baráttu sína gegn fíkniefnum og forystu í forvarnamálum, bæði á Íslandi og á evrópskum vettvangi. Þau voru afhent á þingi Samtaka evrópskra borga gegn fíkniefnum, ECAD, sem í ár er haldið á Írlandi.
Heiðursverðlaunin, sem nefnast „Lifetime Achievement Award“, voru veitt í fyrsta sinn nú.
Formaður samtakanna, Jim Corr, afhenti verðlaunin og sagði í ávarpi sínu að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefði um árabilt stutt á margvíslegan hátt baráttu gegn fíkniefnum á evrópskum vettvangi og beitt sér fyrir nýjum leiðum í forvarnarstarfi. Hann hefði frá upphafi verið verndari átaksins „Evrópsk ungmenni gegn fíkniefnum“ en á vegum þess hafa um 20 evrópskar borgir nýtt sér íslenska forvarnarreynslu og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














