Forsætisráðherra Pakistans kærður

Forsætisráðherra Pakistans, Yusuf Raza Gilani, hefur verið kærður fyrir óhlýðni við hæstarétt landsins, eftir að hann neitaði að fara að úrskurði réttarins og taka aftur upp rannsókn á spillingarmálum á hendur núverandi forseta Pakistans, Asif Ali Zardari.
Forsætisráðherrann á yfir höfði sér fangelsisvist og sviptingu embættisins verði hann sakfelldur.
Gilani heldur því fram að forsetinn, sem er jafnframt formaður stjórnmálaflokks Gilanis, njóti friðhelgi sem æðsti embættismaður Pakistan. Zardari forseti hefur verið sakaður um að nota svissneska bankareikninga til að fela mútur sem hann hafi þegið.
Málin gegn forsetanum voru meðal þúsunda spillingarmála sem voru felld niður árið 2007 - í samræmi við lög um sakaruppgjöf sem fyrrverandi forseti landsins, Pervez Musharraf hershöfðingi kom á.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







