Flytur sjálfur inn 600 vörutegundir

Kaupmaður á Akranesi flytur sjálfur inn um 600 vörutegundir þar sem birgjar bjóða honum töluvert hærri verð en keppinautum. Verslun hans þarf í sumum tilfellum að greiða ríflega 20 prósentum meira fyrir vörur en stærsti keppinauturinn á markaði.

Kaupmennirnir í Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi hafa um tuttugu ára skeið flutt inn sínar eigin vörur til að bregðast við þessu ójafna verði sem birgjar bjóða verslunum. Einar Ólafsson, einn fárra „kaupmanna á horninu“ á Íslandi, segist fyrst hafa tekið eftir ólíku verði frá birgjum til verslana árið 1993. Til að sporna við þessum hóf hann eigin innflutning á fjölda vörutegunda. „Þá höfum við verið að fá vörurnar á mun hagstæðara verði heldur en annars og það hefur bara hjálpað okkur í þessari samkeppni, þessari hörðu samkeppni sem er á þessum markaði.“

Einar flytur inn um 600 vörutegundir - bæði nýstárlegar vörur og þekktari vörumerki sem hafa verið lengi í hillum verslana. „Þetta eru vörur sem  heildverslanirnar hér hafa verið að bjóða en okkur hefur tekist að fá þær með mun hagstæðara verði með þessu móti.“

Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins er sérstaklega farið yfir hver verðmunur birgja til einstakra verslana sé. Af þeim vörum sem verslanir kaupi af verslunarkeðjum og birgðahúsum greiðir Verslun Einars Ólafssonar um tuttugu og einu prósenti hærra verð en Hagar. Verðmunurinn er svipaður í öðrum flokkum.

„Kannski er ekkert óeðlilegt að þeir sem séu stórir fái afslætti umfram aðra en bilið getur ekki verið svona mikið,“ segir Einar. Þaðan sem hann flytji inn sínar vörur sé afslátturinn töluvert minni. „Þá fer afsláttur venjulega ekki yfir þrjú prósent á móti því sem að hér er uppi á tugi prósent, marga tugi prósenta, sem að náttúrulega nær ekki nokkurri einustu átt.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku