Flytja út 11 milljón dósir af lifur

Akraborg sýður líka niður lifrarkæfu.
Þorsklifur hefur lengi verið nýtt í lýsi, en færri vita að hún er líka soðin niður í dósir og seld til útlanda sem úrvalsvara. Stærsta lifrarniðursuðuverksmiðja heims er Akraborg á Akranesi. Þar hefur lifur verið soðin niður í um tvo áratugi.
Rolf Hákon Arnarson framkvæmdastjóri segir að til að byrja með hafi verið erfitt að sannfæra menn um að koma með lifur að landi, í stað þess að fleygja henni fyrir borð. Það hafi mikið breyst. Verð fyrir lifrina hafi hækkað og menn hafi nú gert sér grein fyrir því að lifrin sé matur. Í fyrra haust voru svo settar reglur um að skip þurfi í ár að koma með alla lifur að landi.
Rolf segir að nú sé meiri spurn eftir lifur úr sjónum við Ísland og Noreg en áður. Það sé vegna reglna ESB um díoxínmengun í matvælum. Eystrasaltið sé svo mengað að ekki sé lengur hægt að vinna lifur úr fiski þaðan.
Vertu vinur Landans á Facebook
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







