Flest skíðasvæði opin
Fyrst birt: 11.02.2012 10:39, Síðast uppfært: 11.02.2012 10:39

Skíðafólk ætti að komast á skíði í dag því velflest skíðasvæði landsins eru opin.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað klukkan tíu. Þar er allhvasst en ágætis færi. Á Dalvík verður skíðasvæðið opið frá kl. 11 til 16 og eins í Tindastóli í Skagafirði. Í Oddsskarði er ágætis veður og þar verður opið frá 10 til 16.
Íbúar á Höfuðborgarsvæðinu geta skellt sér í Bláfjöll. Þar var opnað klukkan tíu og verður opið til klukkan sjö í kvöldverður opið frá 10 til sjö. Í tilefni vetrarhátíðar er frítt fyrir börn, 12 ára og yngri.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







