Fleiri samingar um fasteignakaup

372 samningum um fasteignakaup var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Samningum fjölgaði um 69.9% miðað við janúar í fyrra og veltan jókst um 73.9% prósent. Heildarvelta samninganna í síðasta mánuði var um 11 milljarðar króna.
Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 6,9 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 3,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,7 milljörðum króna. Meðalupphæð á hvern samning í janúar var 29,4 milljónir. Samningar voru einum færri í janúar en í desember og velta dróst saman um 11,6%. Meðalupphæð 373 samninga sem þinglýst var í desember, var 33,2 milljónir króna. Í frétt Þjóðskrár Íslands er vakin athygli á því að meðalupphæð kaupsamninga megi ekki túlka sem meðalverð eigna, né sem merki um verðþróun. Makaskiptasamningar, það er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign, voru rúmlega 3% af samingum í síðasta mánuði. Í janúar í fyrra var hlutfall þeirra mun hærra 12,4%. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga bara við um íbúðarhúsnæði.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







