Fjörleg en fámenn skrúðganga

Dýr og menn að halda upp á 17. júní Mynd: Claus Sterneck
Þjóðhátíðardagurinn er hafður í heiðri víða um land, jafnvel á afskekktustu og fámennustu stöðum. Þannig er haldin árleg skrúðganga á Djúpavík á Ströndum, sem í ár var þó óvenju fámenn en hundarnir á staðnum lögðu sitt af mörkum.
„Við höfum gert þetta í nokkur ár, systir mín spilar á saxófón og gengur í broddi fylkingar, svo fylgja á eftir þeir sem eru staddir á svæðinu og spila á allskonar hljóðfæri. Við spilum meðal annars á heimatilbúnar hristur og ég var trommuleikarinn í dag, með plastfötu og sleif,“ segir Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstýra á Hótel Djúpavík.
„Það var reyndar óvenju fámennt í dag, oft hafa verið miklu fleiri krakkar. En þarna voru þrjár útlenskar konur sem slógust í hópinn. Við byrjum fyrir framan hótelið, göngum niður að verksmiðju og aftur til baka og endum á því að hrópa „Húrra fyrir Íslandi!“ Svo gæðum við okkur á köku með kaffinu.“
Myndina af skrúðgöngunni tók þýskur listamaður, Claus Sterneck, sem dvelur á Djúpavík í sumar og stendur fyrir sýningu í gömlu verksmiðjunni á ljósmyndum og hljóðverkum. Hann heldur einnig úti Facebook síðu þar sem hægt er að fylgjast með Íslandsdvöl hans.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














