Fjölmennt á skíðasvæðum

Alþjóðalega skíðahátíðin ,,Snjór um víða veröld“ er haldin á skíðasvæðum landsins í dag. Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin til að njóta hollrar útivistar.
Alls staðar er frítt í skíðalyftur fyrir 12 ára og yngri og sum skíðasvæðin bjóða öllum ókeypis í lyfturnar. Á Ísafirði voru lyftur opnaðar klukkan ellefu og segir Sólrún Geirsdóttir, starfsmaður skíðasvæðisins, daginn byrja vel.
Þótt ekki hafi verið opnað fyrr en klukkan 11 sé fjöldi fólks kominn á skíði og löng röð við barnalyftuna. Í haust byrjaði íþróttaskóli fyrir börn á aldrinum 6-9 ára. Í skólanum fá þau grunnþjálfun í öllum íþróttum. Fjöldi barna nýtir sér þetta og bætast ný við daglega, að sögn Sólrúnar.
Víða verður boðið upp á skíðakennslu fyrir börn og jafnvel fullorðna í tilefni dagsins og veður er alveg þokkalegt. Úrkoma fyrir norðan, vestan og austan en bjart á Suðvesturlandi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







