Fjöldi lausra plássa á leikskólum

Samkvæmt upplýsingum frá leikskólastjórum í Reykjavík eru á annað hundrað laus pláss í leikskólum borgarinnar. Fylla mætti á fjórða tug þeirra án þess að fjölga starfsfólki.
Fréttastofa RÚV hefur fengið þó nokkrar ábendingar um að laus pláss séu að finna á leikskólum borgarinnar, þrátt fyrir að 900 börn fædd árið 2010 séu á virkum biðlista.
Formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar sagði í viðtali við RÚV að sökum þess hve stór 2009 árgangurinn var, hafi verið ákveðið að innrita ekki börn fædd 2010 þessu ári.
Samkvæmt upplýsingum frá borginni liggur meginkostnaður við hvert leikskólapláss í launum þess starfsfólks sem þurfi að ráða inn, eigi að fjölga börnum.Eftir stendur þó spurningin hvort laus pláss séu á leikskólum borgarinnar, og ef svo er þá hve mörg. Þær upplýsingar hafa borgaryfirvöld ekki veitt. Þá var send út fyrirspurn á alla leikskólastjóra í Reykjavík.
Samkvæmt þeim svörum sem þó bárust frá leikskólastjórum eru að minnsta kosti 124 laus pláss á fjórtán leikskólum borgarinnar, þar af minnst 35 sem hægt væri að fylla án þess að fjölga starfsfólki.
Þessi svör eru þó ekki tæmandi þar sem borgaryfirvöld sendu leikskólastjórum póst um að svara ekki fyrirspurn fréttastofu.
Fyrr á árinu réðust borgaryfirvöld í uppsetningu viðbótarhúsnæðis við tíu leikskóla í Reykjavík til að rúma þá stóru árganga sem fæddust 2009 og 2010. Sumt af því húsnæði stendur autt.
Fátt hefur verið um svör hjá borgaryfirvöldum, þar sem borgarstjórinn, Jón Gnarr, neitaði að veita viðtal um málið. Hann vísaði á formann skóla- og frístundaráðs, sem sagðist ekki hafa neinu við málið að bæta.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







