Fimmtán lög valin í söngvakeppnina

Sjonnis friends

Fimmtán lög hafa verið valin til að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012 sem hefst 14. janúar. Auglýst var eftir lögum í keppnina og bárust alls 164 lög.

Fimm lög keppa í senn í  beinni útsendingu frá myndveri Sjónvarpsins. Áhorfendur og dómnefnd velja þau lög sem komast áfram í úrslitaþáttinn og hefur símkosning helmingsvægi á móti atkvæðum dómnefndar. Úrslitin fara fram laugardagskvöldið 11. febrúar. Lagið sem ber sigur úr býtum verður framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Bakú í Aserbaídsjan í maí á næsta ári.

Höfundar laganna fimmtán þeirra eru Axel Árnason og Ingólfur Þórarinsson, Árni Hjartarson, Ellert H. Jóhannsson, Gestur Guðnason, Greta Salóme Stefánsdóttir, Herbert Guðmundsson og Svanur Herbertsson, Hilmar Hlíðberg Gunnarsson, Magnús Hávarðarson, María Björk Sverrisdóttir, Fredrik Randquist og Marcus Frenell, Pétur Arnar Kristinsson, Sveinn Rúnar Sigurðsson og Valgeir Skagfjörð.   

Alls eru því sextán lagahöfundar sem taka þátt að þessu sinni. Sveinn Rúnar Sigurðsson á þrjú lög í keppninni og Greta Salóme Stefánsdóttir á tvö lög. Tvö lög eru samin af tveimur höfundum, en þeir eru Axel Árnason og Ingólfur Þórarinsson og Herbert Guðmundsson og Svanur Herbertsson. Eitt lag er samið af þremur höfundum, en þeir eru María Björk Sverrisdóttir, Fredrik Randquist og Marcus Frenell.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka