Fimmtán ára bókasafnari

Högni Þorsteinsson lést aðeins 15 ára gamall. Hann ánafnaði Reykjaskóla bókasafn sitt sem innihélt um 300 bindi.
Högni Þorsteinsson var frá Bessastöðum og lést þar árið 1935, þá 15 ára gamall. Högni þótti með afbrigðum bókhneigður og námsmaður að því skapi. Hann stundaði skólanám heima og naut nokkurrar leiðbeiningar hjá kennurum í Reykjaskóla.
Á banalegu sinni ánafnaði Högni Reykjaskóla bókasafn sitt eftir lát sitt. Úr varð að skólanum var afhent bókasafnið, sem innihélt um 300 bindi, og peningagjöf sem nota skyldi til að efla bókasafnið sem nefnt skyldi Högnasafn. Frá þessu segir í Nýja Dagblaðinu frá nóvember 1935, en það er hægt að lesa greinina hér. Húnaþing vestra hefur óskað eftir því við Mennta- og menningarmálaráðuneytið að ráðuneytið ánafnaði því safninu. Með því yrði safnið gert aðgengilegt en það er nú geymt í hillum og kössum.
Vertu vinur Landans á Facebook.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







