Fimm snjóflóð á Vestfjörðum
Fyrst birt: 30.12.2012 12:28, Síðast uppfært: 30.12.2012 13:49

Hættustig vegna snjóflóða er enn í gildi fyrir Patreksfjörð, Flateyri, Hnífsdal, Ísafjörð og Súðavík. Fimm snjóflóð hafa fallið á Vestfjörðum síðasta sólarhringinn, en ekkert þeirra hefur valdið skemmdum.
Það stærsta kom úr Skollahvilft við Flateyri, en einnig kom flóð niður á rýmingarsvæði á Ísafirði. Það stöðvaðist hundrað og fimmtíu metrum fyrir ofan Seljalandsveg innarlega í bænum.
Þegar aðstæður voru kannaðar í morgun kom í ljós að snjóflóð hafði einnig fallið úr Eyrarhlíð, á Breiðadal og við Botn í Súgandafirði en það flóð féll á vegskálann þar sem göngin koma niður í Súgandafjörð. Þá féll einnig snjóflóð úr Krossagili rétt við Núp í Dýrafirði.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













