Fíkniefni falin á spítala

Fíkniefni fundust falin á Landspítala í gær. Sterkur grunur leikur á að þau hafi verið ætluð fanga, sem kom til læknis á spítalanum í fyrradag. Skoða þarf öryggismál nánar segir Már Kristjánsson, yfirlæknir.

Yfirvöld á Litla Hrauni vöruðu spítalann við því áður en fanginn kom til læknis á göngudeild í Fossvogi í fyrradag að hugsanlegt væri að hann myndi fá afhend þar fíkniefni. Töluverður viðbúnaður var á spítalanum. Öryggisverðir voru kvaddir til, salerni og aðrar vistarverur skoðaðar en ekkert fannst. 

Nærliggjandi salernum þar sem fanginn var í læknisviðtali var læst. Fanginn bað um að fá að fara á salerni en hafði ekki erindi sem erfiði og mun því hafa orðið nokkuð æstur. 

 Efnin fundust svo í gær. Þau fundust inn á litlu salerni á spítalanum og hafði verið komið fyrir í smokki. Smokkurinn var settur fyrir ofan loftþiljur. Sá sem ætlaði að nálgast efnin hefði hæglega getað tekið þau og til dæmis gleypt smokkinn.  Þá hefði enginn tekið eftir neinu, segir Már. 

Lögreglan var kvödd á staðinn og þakkar Már góðri samvinnu spítalans og Litla Hrauns að svo vel hafi tekist til í þetta sinn. Þetta sé ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerist. Áður fyrr hafi reykingaherbergi spítalans til dæmis verið opin en þeim hafi verið lokað. Fíkniefnaneytendurnir sem voru inniliggjandi fóru í reyk og komu síðan í vímu til baka. 

Hann setur spurningamerki við það hvort öryggisráðstafanir séu nánar og býst við því að þau mál verði skoðuð nánar. Á sjúkrahúsum erlendis þurfa þeir sem þangað koma víða að gera grein fyrir sér áður þeim er hleypt inn. Göngudeildir hér eru opnar og getur hver sem er gengið þar um.  Má finnst óhuggulegt að til þess að vita að á spítalanum fari fram skipti á fíkniefnum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku