Ferðamaður lést í Landmannalaugum

Flokkar: Innlent
Frá Landmannalaugum. Mynd: Shutterstock


  • Prenta
  • Senda frétt

Erlendur ferðamaður, karlmaður á þrítugsaldri, lést í Landmannalaugum í nótt. Tilkynnt var um veikindi hans um klukkan fjögur.

Björgunarsveitarmenn sem staddir voru í Landmannalaugum, reyndu endurlífgun. Maðurinn var úrskurðaður látinn um klukkan fimm, þegar læknir kom á staðinn með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli er dánarorsök ekki kunn. Maðurinn var ásamt þremur öðrum í Landmannalaugum. Lík hans var flutt til Reykjavíkur í nótt. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku