Fer fram á 3-4 ára dóm yfir Styrmi Þór

Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir


  • Prenta
  • Senda frétt

Sérstakur saksóknari krafðist þess fyrir héraðsdómi í dag að Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, yrði dæmdur í 3-4 ára fangelsi fyrir þátt sinn í umboðssvikum og peningaþvætti.

Hann hefði átt þátt í því að Byr lánaði dótturfélagi MP banka fyrir kaupum á stofnfjárbréfum í Byr sem reyndust svo verðlaus. Jón Þorsteinn Jónsson og Ragnar Z. Guðjónsson voru dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti í fyrra fyrir að veita þetta lán.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku