Fer á snjóbíl í vinnuna

Gunnar Sigurðsson keyrir snjóbílinn yfir Hrafnseyrarheiði.
Flestum þykir nógu mikið vesen að skafa rúður og moka frá bílnum, áður en lagt er af stað til vinnu í morgunsárið. En Pétur Þór Erlingsson þarf að leggja heldur meira á sig þegar hann mætir í vinnuna í Mjólkárvirkjun í Arnarfirði.
Pétur heldur tvö heimili, eitt í virkjuninni og annað á Ísafirði, þar sem kona hans og dætur búa að vetrarlagi. Fyrsta skrefið er að keyra frá Ísafirði á Þingeyri, um 50 km leið.
Við bæinn Brekku í Dýrafirði er Gunnar Sigurðsson með gamlan snjóbíl sem á að flytja Pétur yfir Hrafnseyrarheiði, farartálmann sem skiptir samfélaginu á Vestfjörðum í tvennt að vetrarlagi. Landinn fékk far með snjóbílnum yfir heiðina og heimsótti hina einangruðu Mjólkárvirkjun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







