Fengu þungan dóm fyrir nauðgun



  • Prenta
  • Senda frétt

Stefán Logi Sívarsson og Þorsteinn Birgisson fengu í morgun þunga dóma fyrir nauðgun á tæplega nítján ára stúlku. Stefán Logi fékk fimm ára dóm en Þorsteinn fjögur ár og sex mánuði. Í dómnum segir að brot þeirra sé alvarlegt og háttsemi þeirra sérlega niðurlægjandi fyrir stúlkuna.

Mennirnir voru dæmdir til að greiða stúlkunni tvær milljónir í miskabætur en bæði Stefán og Þorsteinn eiga allnokkurn sakaferil að baki. Fram kemur í dómnum að brotið hafi haft djúpstæð áhrif á líðan stúlkunnar, hún glími við alvarleg einkenni áfallastreituröskunnar og þunglyndis. Fram kom í vitnisburði sálfræðings að óvíst væri um batahorfur hennar. 

Mennirnir drógu stúlkuna inn í bíl sinn þar sem hún var fyrir utan veitingastað á Hlemm í lok nóvember 2011. Þaðan óku þeir henni að húsi, báru hana inn í íbúð á jarðhæð þess og nauðguðu henni.

Mennirnir neituðu sök en dómurinn mat framburð þeirra ótrúverðugan og misvísandi. Þykir það sannað að mennirnir hafi beitt stúlkuna ofbeldi til að koma vilja sínum við hana og þá hafi þeir notfært sér þann aðstöðumun sem var með þeim og stúlkunni.  Þeir séu sterklega byggðir og hafi vakið með henni ógn með framkomu sinni. Þykir dómnum því sannað að Stefán og Þorsteinn hafi með ofbeldi og ólögmætri nauðung þröngvað stúlkunni til samræðis og annarra kynferðismaka.  Hefur háttsemi þeirra, að mati dómsins, valdið stúlkunni mikilli andlegri vanlíðan.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku