Fasteign Hannesar til sölu

Glæsihýsi í Þingholtunum sem var í eigu Hannesar Smárasonar, er falt fyrir tæpar tvö hundruð milljónir króna. Íbúð sem hann átti í Lundúnum var seld í fyrra upp í skuldir fyrir rúman milljarð.
Einbýlishúsið á Fjölnisvegi 11 verður að teljast eitt af glæsilegustu fasteignunum í Reykjavík. Það er er líka á vissan hátt minnisvarði um bankabóluna sem sprakk með miklum hvelli fyrir þremur árum. Húsið var í eigu Hannesar Smárasonar í gegnum félag hans, Fjölnisvegur níu ehf. sem var tekið til gjaldþrotaskipta í júlí í fyrra. Það félag átti tvær fasteignir, íbúð á Pont Street í Lundúnum, í Knightsbridge, sem er eitt af dýrustu hverfum borgarinnar sú íbúð var seld í fyrra á rúmlega sex milljónir punda eða um einn komma tvo milljarða króna sem var talsvert undir uppsettu verði þegar Landsbankinn gekk að veðum vegna skulda eignarhaldsfélagsins.
Hin fasteignin var svo húsið á Fjölnisvegi 11 sem er rúmir fjögur hundruð og þrjátíu fermetrar, með þremur stofum, fimm svefnherbergjum og það sem kallað er Spa aðstöðu í kjallaranum. Hannes og fjölskylda hans hafa haft húsið til afnota síðustu misseri, en það var tæmt eftir áramót og sett á sölu á föstudaginn. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa þónokkrir komið að skoða þessa fasteign sem á að kosta 190 milljónir króna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







