Fáir Evrópubúar þekkja 112

Aðeins fjórðungur íbúa Evrópusambandslanda þekkir neyðarnúmerið 112, sem er hið almenna neyðarnúmer í Evrópu. Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir þetta hafa verið vandamál fyrir þá útlendinga sem þurft hafa á neyðaraðstoð að halda hér á landi.

í vor fá allir upplýsingar um íslenska neyðarnúmerið um leið og þeir koma hingað. Evrópuráðið gerði í lok síðasta árs könnun meðal íbúa Evrópusambandslandanna um hvort þeir þekktu neyðarnúmerið 112, en það var tekið upp sem samevrópskt neyðarnúmer fyrir rúmum tuttugu árum. Aðeins 26% íbúanna þekktu númerið, sem alþjóðlegt neyðarnúmer, öllu fleiri sem númer síns heimalands.

Niðurstaðan var hins vegar misjöfn eftir löndum. 96% Svía þekktu númerið sem neyðarnúmer heima fyrir, en aðeins 1% Breta. Ísland var ekki með í þessari könnun, en Þórhallur Ólafsson forstjóri Neyðarlínunnar segir að hér þekki menn númerið vel. 
„Það eru rétt um 100% sem þekkja neyðarnúmerið, búið að vera þannig lengi. Í könnunum allt til ársins 2000 hefur þetta verið 99,5%  til 100% nánast.“

Þórhallur segir þetta skýrast af því að 112 er eina neyðarnúmerið hér á landi, meðan þau eru oftast fleiri í öðrum löndum.  Hann segir þetta hafa valdið útlendingum hér á landi vandræðum. Þeir sem eru með gervihnattasíma þurfi til dæmis að hringja í +354 80 90 112 til að ná sambandi við íslensku neyðarlínuna. 

„Þess vegna eru menn í gegnum gervihnattasímana að hringja í neyðarlínur í öðrum löndum eða í ættingja, eins og dæmin sanna,“ segir Þórhallur. 

Þórhallur segir að í vor fái þeir útlendingar sem koma hingað upplýsingar í farsímann sinn um íslenska neyðarnúmerið. Þá verður einnig boðið upp á að hala niður neyðarforriti í símann, svokölluðu appi. 

„Þannig að menn ýti bara tvisvar á appið og þá kemur bæði staðsetning, eigandi símans og fleiri upplýsingar til okkar. Það mun auka öryggi þeirra útlendinga sem hér eru.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku