Færri lyf flutt inn

Mynd: NordicPhotos/Getty Images.

Færri samheitalyf eru flutt inn á Íslandi en til stóð vegna þess að kostnaður við skráningu þeirra hækkaði um 1600% fyrir þremur árum. Skrifstofustjóri hjá lyfjafyrirtækinu Lyfís segir að samkeppnin á markaðnum sé minni fyrir bragðið og verð lyfjanna því hærra.

Fyrir þremur árum hækkaði Lyfjastofnun gjaldið fyrir landsskráningu úr 115 þúsund krónum fyrir hvert lyf í 1,8 milljónir. Tvö smærri lyfjafyrirtæki sem eru að reyna hasla sér völl á íslenskum lyfjamarkaði höfðu þá gert samninga um kaup á fjölda lyfja sem þau hugðust flytja inn til Íslands. Eitt af þeim var Portfarma sem ætlaði að leggja áherslu á að flytja samheitalyf til Íslands.

Olgeir Olgerisson framkvæmdastjóri segir að fyrirtækið hafi þurft að hætta við innflutning á 50 samheitalyfjum eftir hækkunina en líka hafi það haft áhrif hve langan tíma það tekur að afgreiða leyfin. Portfarma beinir nú sjónum sínum í auknum mæli að erlendum mörkuðum.

Regína Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri hjá Lyfís, sem er hitt fyrirtækið segir að hækkunin hafi haft mikil áhrif.
„Sú hækkun [...] hefur auðvitað haft þau áhrif að þú skoðar auðvitað betur hvaða lyf það eru sem þú setur á markað því þau verða að standa undir sér sem slík. Það kannski fækkar þeim lyfjum sem þú velur að setja á markað þar sem kostnaðurinn er meiri auðvita,“ segir Regína.

„Áhrifin á markaðinn eru væntanlega þau að það eru færri lyf hér, samheitalyf hér á markaði, og þar af leiðandi samkeppnin minni og það auðvitað hefur áhrif á verð lyfjanna,“ segir Regína.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku