EXPO-skálinn sýndur í Hörpu

Flokkar: Innlent, Menning


  • Prenta
  • Senda frétt

Það er einstök upplifun að ganga inn í íslenska EXPO sýningarskálann segir Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu. Gengið er inn í kvikmynd um Ísland. Skálinn verður sýndur í Hörpu í fimm vikur.

EXPO skálinn þykir mikið tækniafrek. Aðalhönnuður hans er Páll Hjaltason arkitekt. Skálinn er teningur úr striga með áprentuðum myndum af jökulís. Sagafilm framleiddi 360 gráðu kvikmyndina sem sýnd er í skálanum. Myndirnar voru teknar bæði úr flugvélum og þyrlum. Átta myndvarpar sýna fimmtán mínútna stuttmynd um Ísland, á veggjum og í lofti skálans og skapa umlykjandi rými myndar og hljóðs.

„Þú gengur inn í tening, og myndin er allt í kringum þig og yfir þér, birtir þér bæði náttúru og borg með hætti sem að enginn hefur séð áður,“ segir Halldór um upplifunina.

Skálinn var fyrst sýndur á heimssýningunni í Shanghai í Kína árið 2010 og svo aftur á bókasýningunni í Frankfurt í fyrra. Þegar hafa hátt í þrjár milljónir manna séð skálann. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku