Evruna skortir föðurland

08.03.2013 - 18:51
Mynd með færslu
Evran er landlaus gjaldmiðill. Þess vegna er hún svo viðkvæm. Við verðum að koma á fót landi fyrir hana með því að breyta Evrópusambandinu. Ef það verður ekki þá mun hún ekki blíva, segir Paul de Grauwe, belgískur prófessor við London School of Economics.

Prófessorinn segir að Spáni myndi farnast betur hefði hann haft eigin gjaldmiðil í hruninu. Þá hefði ríkisstjórnin getað fyrirskipað skuldabréfaútgáfu og getað fellt gengið. Þess í stað er landinu þrýst inn í mjög erfiða stöðu þar sem allt gengur út á niðurskurð og afleiðingin er atvinnuleysi. Ef evru-löndunum tekst ekki að hjálpa Spáni, Portúgal og Ítalíu út úr kreppunni þá hellist yfir okkur ný kreppa og það verður erfitt að eiga við hana. Nú verður Norður-Evrópa að auka hagvöxtinn til að hjálpa suðrinu.
  Ef Íslendingar tækju upp evru fljótlega, spyr Spegillinn, myndum við þá fá þann stöðuga gjaldmiðil sem marga hér dreymir um?
Já, í þeim skilningi að kaupmátturinn hér yrði miklu meiri, segir Paul de Grauwe. Í framhaldinu yrði það spurning um stöðugleikann. Og það gæti komið upp skyndilegur fjármagnsskortur eins og við höfum séð í sumum suður-evrópskum löndum. Þegar ég hugsa um ykkur hér þá er ég ekki viss um að það væri ráðlegt að taka þátt í evru-samstarfinu að svo stöddu.


Deila frétt



08.03.2013 - 18:51