Evrópa með hjartað á réttum stað

Vinir Sjonna og Þórunn Clausen, textahöfundur og ekkja Sigurjóns Brink. Mynd: Ragnar Santos.

Ísland komst í úrslit Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva en fyrri undankeppni var háð í Düsseldorf í Þýskalandi í gærkvöld. 19 lönd kepptu um að komast áfram í úrslit en aðeins var pláss fyrir tíu. Þórunn Clausen textahöfundur og ekkja Sigurjóns Brink sem samdi íslenska lagið Coming home var að vonum ánægð þegar nafn íslands var lesið upp, síðast þeirra tíu landa sem komust áfram.

Hún segir meðlimi hópsins vera stolta og ánægða. Um 130 milljónir muni heyra lagið á laugardagskvöldið. Þórunn segir greinilegt að Evrópubúar séu með hjartað á réttum stað, það sé ekki bara pólitík sem ráði.

Önnur lönd sem komust áfram voru Aserbaídsjan, Finnland, Georgía, Grikkland, Litháen, Rússland, Serbía, Sviss og Ungverjaland. Í Noregi ríkir þjóðarsorg þar sem norska framlagið komst ekki í úrslit. Að sögn norska sjónvarpsins hvarf hljóðið sums staðar á meðan flutningi norska lagsins stóð. Á Spáni heyrðust fyrstu 10 sekúndurnar og svo síðasta hálfa mínútan.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku