Erlingur ráðinn yfirþjálfari ÍBV

Erlingur við undirskriftina á lokahófi ÍBV í gærkvöldi.


  • Prenta
  • Senda frétt

Erlingur Richardsson, annar þjálfara Íslandsmeistara HK í handbolta er á förum til ÍBV þar sem hann hefur verið ráðinn yfirþjálfari handknattleiksdeildar og annar aðalþjálfara karlaliðs ÍBV.

Erlingur sem skrifaði undir 2 ára samning þess efnis á lokahófi handknattleiksdeildar ÍBV í gærkvöldi verður einnig þjálfari karlaliðs ÍBV við hlið Arnars Péturssonar. Erlingur verður forstöðumaður íþróttaakademíu ÍBV en hún er í samstarfi við grunn- og framhaldsskóla Vestmannaeyja. Þá verður hann jafnframt yfirþjálfari allra yngri flokka ÍBV og yfirmaður allrar styrktarþjálfunar hjá félaginu, í handbolta og fótbolta

Erlingur er uppalinn Eyjamaður og var leikmaður ÍBV sem varð bikarmeistari árið 1991 en það er eini titillinn sem karlalið ÍBV í handbolta hefur unnið.

Erlingur er íþróttafræðingur að mennt og starfar sem kennari í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku