Erlendir ferðamenn eyða minna

Flokkar: Innlent


  • Prenta
  • Senda frétt

Eyðsla erlendra ferðamanna hér á landi hefur lækkað skarpt samhliða auknum straumi þeirra til Íslands. Meðalferðamaðurinn eyðir nú rúmlega tíu þúsund krónum minna á hverjum degi en hann gerði fyrir hrun.

Það fer vart fram hjá neinum sem heimsækir veitinga- eða kaffihús eða bara miðborgina þessa dagana að fjöldi erlendra ferðamanna hefur sótt Ísland heim yfir sumarmánuðina. Reyndar stefnir í metár í þessum þjónustuiðnaði sem fer ört vaxandi hér á landi.

Í fyrra komu 565 þúsund ferðamenn til Íslands. En það sem af er ári hefur ferðamönnum fjölgað um rúm átján prósent samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu.

En það er víst ekki nóg að fá bara ferðamennina hingað til lands. Þeir þurfa líka að eyða svo að koma þeirra verði arðbær fyrir greinina.

Arion banki hefur rýnt í fjölda og eyðslu ferðamanna sem sækja Ísland heim - nú og fyrir hrun.

Árið 2004 eyddu erlendir ferðamenn tæplega 50 þúsund krónum á dag hér á landi. Árið í fyrra var þessi tala komin niður í 35 þúsund krónur sé miðað við fast verðlag í krónum. Töluvert sparsamara leyfi, sé að marka tölurnar. Væru aðrir gjaldmiðlar skoðaðir væri fallið töluvert hærra.

Svo virðist sem þessi tala ætli þó ekki að fara mikið lægra því aðeins hefur réttst úr kútnum þó enn séum við langt frá þeirri meðal eyðslu sem þekktist fyrir hrun.

Staða ferðamennskunar á Íslandi er þó ekki einsdæmi, enda hefur alþjóðlega fjármálakreppa haft áhrif á ferðamennsku um allan heim. Ferðafólk heldur að sér höndum - að minnsta kosti um sinn. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku