Erfitt að meta hvort Snorri braut lög

Ummæli Snorra féllu ekki í góðan jarðveg hjá foreldrum barna í Brekkuskóla.

Erfitt er að meta hvort Snorri Óskarsson, kennari á Akureyri, hafi gerst brotlegur við almenn hegningarlög með skrifum sínum um samkynhneigða. Þetta segir formaður Lögmannafélags Íslands. Vinnusamningar geti hins vegar heft tjáningarfrelsi.

Snorri Óskarsson, kennari í Brekkuskóla á Akureyri, sem oft er kenndur við Betel, hefur valdið töluverðri reiði í skólanum vegna skrifa um samkynhneigð á bloggsíðu sína. Snorri skrifaði að kjarninn í sjónarmiði evangelískra sé sá að samkynhneigðin teljist vera synd. Laun syndarinnar sé dauði og því sé hún grafalvarleg. Brynjar Níelsson, formaður lögmannafélagsins, segir erfitt að meta hvort Snorri hafi brotið gegn almennum hegningarlögum með skrifum sínum.

„Það er þannig, þó menn hafi stjórnarskrárvarinn rétt til að tjá skoðanir sínar, þá eru takmarkanir á því,“ segir Brynjar og vísar í 233. Grein A almennra hegningarlaga þar sem segir að óheimilt sé að ráðast með einhverskonar smánun á hóp manna, til að mynda vegna kynhneigðar. „Þannig að menn yrðu að meta það hvort þessi orð séu með þeim hætti að hann hafi getað gerst brotlegur gagnvart þeirri grein.“

Brynjar segir hins vegar vel mögulegt að Snorri hafi með skrifum sínum brotið gegn reglum skólans, og því sé hægt að refsa honum miðað við þær. En væri þá skólinn ekki með því að hefta málfrelsi hans?

„Það er bara þannig þegar við ráðum okkur í störf að þá getur það verið heft samkvæmt einhverjum reglum í vinnusamningi eða reglum á vinnustað. Menn verða þá bara að sætta sig stundum við það. Þetta er matskennt náttúrulega, en refsingin verður væntanlega ekki með öðrum hætti en að honum verði vikið frá störfum eða veitt áminning,“ segir Brynjar. 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku