Ennþá meirihlutalaust í Kópavogi

Frá bæjarstjórnarfundi í Kópavogi.

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og lista Kópavogsbúa funduðu í dag um myndun nýs meirihluta í Kópavogi. Þeir ætla að hittast aftur annaðhvort í kvöld eða fyrramálið.

Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, er vongóður um að flokkarnir nái saman um nýjan meirihluta. Hann vill ekki tjá sig efnislega um málið að öðru leyti.

(jpg)

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku