Enn ósamið um þinglok
Fyrst birt: 14.09.2011 07:18 GMT, Síðast uppfært: 14.09.2011 07:55 GMT
Þingfundur stóð til tæplega tæplega tólf og enn er ósamið um þinglokin þrátt fyrir ítrekaða fundi forystu stjórnar og stjórnarandstöðu fram á kvöld í gær. Önnur umræða um stjórnarráðsfrumvarpið heldur áfram í dag og enn eru 10 þingmenn á mælendaskrá.
Ræður voru langar í gær, mikið um andsvör og deilt um þingsköp. 35 mál eru á dagskrá þingsins í dag en samkvæmt starfsáætlun Alþingis á að slíta þingi á morgun. Verður að teljast afar ólíklegt að það takist.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is






