Enginn þingfundur—Bjarni átti að vera fyrstur

15.09.2017 - 09:23
Mynd með færslu
 Mynd: RÚV
Þingfundur sem átti að hefjast klukkan 10.30 fellur niður. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra átti að vera fyrstur í ræðustól Alþingis í morgun. Halda átti áfram fyrstu umræðu um fjárlagafrumvarpið og í dag átti að ræða einstaka málaliði.

Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hún segir að það hafi legið í hlutarins eðli að fella þingfund niður og að enginn hafi mótmælt þeirri ákvörðun. Hún segist ekki vita hvenær þingið kemur aftur saman til fundar. „Við þurfum að gefa okkur tíma til að ákveða hver næstu skref verða.“

Ríkisstjórnarfundi sem vera átti á hefðbundnum tíma var einnig frestað. 

Stjórn Bjartrar framtíðar ákvað á stjórnarfundi seint í gærkvöld að slíta stjórnarsamstarfinu við Viðreisn og Sjálfstæðisflokk vegna upplýsinga sem komu fram varðandi umsókn Hjalta Sigurjóns Haukssonar, dæmds barnaníðings.

Upplýst var í gær að faðir forsætisráðherra hefði verið einn þeirra sem hefði vottað um góða hegðun hans og að forsætisráðherra hefði vitað af aðkomu föður síns frá því í júlí.

 

freyrgigja's picture
Freyr Gígja Gunnarsson
Fréttastofa RÚV