Engin menningarverðmæti fundust
Fyrst birt: 20.02.2012 12:25, Síðast uppfært: 20.02.2012 12:25

Sérfræðingar frá safnaráði og fulltrúi tollstjóra skoðuðu í morgun gull og silfurgripi sem breski gullkaupmaðurinn Mark Nangle keypti hér á landi um helgina. Engin menningarverðmæti voru í fórum hans.
Bannað er að fara með úr landi gripi sem eru eldri en hundrað ára. Gullkaupmenn mátu eigur fólks á þremur hæðum á Grand Hóteli um helgina. Biðraðir mynduðust fyrir utan herbergin. Mikil eftirspurn er eftir gömlum gullskartgripum vegna þess að heimsmarkaðsverð á gulli er í sögulegu hámarki. Mark Nangle og aðrir gullkaupmenn ferðast nú um Evrópu til að falast eftir gömlum gullskartgripum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







