EM í skák á Íslandi 2015

Mynd:Shutterstock


  • Prenta
  • Senda frétt

Skáksambandi Íslands barst í morgun staðfesting á því að Evrópumeistaramótið í skák verði haldið á Íslandi árið 2015. Von er á 500 skákmönnum til landsins, mörgum af af sterkustu skákmönnum heims, sem flestir eru Evrópumenn.

Evrópumeistaramót landsliða í skák er haldið annað hvert ár og er viðburður á heimsmælikvarða í skákheiminum, aðeins Ólympíuskákmótið er stærra. Búast má við 500 sterkum skákmönnum á mótið. Til dæmis má eiga von á þremur stigahæstu skákmenn heims, Norðmanninum Magnúsi Carlsen, Armenanum Levon Aronian og Rússanum Vladimir Kramnik.

Að sögn Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands, er um mikla viðurkenningu að ræða fyrir starf sambandins síðustu ár. Væntanlega spilai þar inní hvað Reykjavíkurmótið hafi gengið vel síðustu ár.  EM-landsliða sé bæði í senn það fjölmennasta og sterkasta sem  haldið hafi verið á Íslandi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku