Eldur í bíl á Selfossi
Fyrst birt: 13.07.2011 22:42 GMT, Síðast uppfært: 13.07.2011 22:44 GMT
Eldur kom upp í bíl á Selfossi í iðnaðarhverfinu í Gagnheiði í kvöld. Slökkvilið kom á staðinn og slökkti. Lögreglan fer með rannsókn málsins. Mikil mildi var að eldurinn skyldi ekki ná í iðnaðarhúsnæðið, sem bíllinn stóð við.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is






