Eldsneytisverð aldrei verið hærra

Mynd: Getty Images.
Elsneytisverð er í sögulegu hámarki hér á landi í dag, hærra en það hefur nokkru sinni verið og gagnrýndu þingmenn harðlega þátt ríkisins í verðinu.
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af háu eldsneytisverði og er tilbúinn til að taka málið fyrir í nefndinni.
Þingmenn gerðu gríðarlega hátt eldsneytisverð að umtalsefni á þingfundi í dag. Meðalverð á bensíni í dag eru rúmar 246 krónur og meðalverð á díselolíu er 253 krónur. Formaður Sjálfstæðisflokksins fullyrti að ríkið hefði aldrei í sögunni tekið fleiri krónur af hverjum seldum lítra. Undir það tók Guðlaugur Þór Þórðarson.
„Um það bil helmingurinn af eldsneytisverðinu eru opinber skattar og gjöld og þetta kemur náttúrlega fram í skertum lífskjörum. Þetta kemur niður á ferðaþjónustunni og kemur auðvitað sérstaklega illa niður á því fólki sem hefur um langan veg að sækja, þarf að fara langan veg, til dæmis til vinnu,“ segir Guðlaugur Þór.
Hann beindi spurningum sínum til Helga Hjörvar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar, sem segir að huga verði að háu eldsneytisverði.
„Þess vegna tek ég undir það að það er full ástæða til að hafa áhyggjur af hækkandi bensínverði. Og þá kannski ekki síður þætti álagningarinnar í bensínverðinu. Ég get svarað háttvirtum þingmanni Guðlaugi Þór Þórðarsyni því að ég er fyllilega tilbúinn til að taka það mál inn í efnahags- og viðskiptanefnd og fara yfir annars vegar þátt olíufélaganna og hins vegar áhrifum gjaldanna og þróunar heimsmarkaðsverðs á olíuna,“ segir Helgi Hjörvar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Bensínverð rýkur upp
Eldsneytisverð hefur tvöfaldast





