Eldar loga í Aþenu

Frá mótmælum í Aþenu í dag. Mynd: Nordic Photos/AFP.
Grímuklæddir mótmælendur létu rigna bensínsprengjum við þinghúsið í Grikklandi og kveikt var í nokkrum byggingum. Talið er að allt að 80.000 manns hafi tekið þátt í mótmælum í Aþenu og 20.000 í Þessalóniku. Lögregla beitti táragasi. Niðurskurðaraðgerðum stjórnvalda er mótmælt.
Enn takast mótmælendur og lögregla á í höfuðborginni. Háreysti og reykur barst inn til þingmanna. Inni sitja þingmenn og takust á um aðgerðir sem verður að samþykkja eigi Grikkir að fá lánafyrirgreiðslu frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Verði þær samþykktar þarf að segja upp 15.000 opinberum starfsmönnum, lækka lágmarkslaun um fimmtung og rýmka löggjöf á vinnumarkaði. Ráðherrar hafa sagt að fáist þetta ekki samþykkt blasi við alger upplausn og miklu verri lífskjör fyrir Grikki.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

25 þúsund mótmæla í Grikklandi
Grískir þingmenn ræða niðurskurð





