Ekki verið að fegra bókhaldið
Peningar til að reisa hjúkrunarheimili eru ekki til og því er nauðsynlegt að taka lán fyrir þeim hjá Íbúðalánasjóði. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Hann hafnar því að verið sé að fegra bókhald ríkissjóðs.
Íslenska ríkið ætlar að verja um 9 milljörðum króna til framkvæmda við hjúkrunarheimili fyrir aldraða næstu 2 til 3 ár. Framkvæmdirnar verða fjármagnaðar með láni frá Íbúðalánasjóði, sem er í eigu ríkisins, og ríkið er því í raun að taka lán hjá sjálfu sér. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi þessa fjármögnunarleið harðlega í hádegisfréttum útvarps í gær og sagði að með henni væri verið að fela kostnað og fegra bókhald ríkissjóðs. Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, tók undir þetta í fréttum sjónvarps í gærkvöldi. Þar gagnrýndi hann stjórnvöld fyrir rangar starfsaðferðir við fjármögnun opinberra framkvæmda, og sagði að þau frestuðu því að færa kostnað í ríkisbókhaldið.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafnar þessari gagnrýni. Hann segir þetta þvælu og tilraunir manna til að gera jákvætt mál að einhverju öðru. Hann segist stoltur af þessu mikla átaki sem sé verið að ráðast í. Hann segir að ekki sé verið að fegra bókhald ríkissjóðs með því að fara þessa fjármögnunarleið. Þetta sé hluti af framtíðargreiðslustreyminu eins og í fjölmörgum öðrum tilvikum þegar ríki geri til dæmis samninga við sjálfseignarstofnanir og aðra slíka aðila. Það sé gerð grein fyrir því en það hafi ekki verið venjan að bókfæra slíkt í einu lagi fyrirfram. Ef það væri almennt gert þá myndi allt reikningshald ríkisins gjörbreytast. Þetta sé þannig miklu stærra mál en bara það sem nú sé uppi.
Ríkisendurskoðandi segir að venjan sé að fjármagna þetta með framlögum úr ríkissjóði. Fjármálaráðherra segir að ekki hefði verið ráðist í þessar framkvæmdir núna ef það hefði verið gert. Peningar til verksins væru ekki til. Hinn valkosturinn væri að klára verk sem þessi hægt og bítandi á næstu 15 til 20 árum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







