Ekki svigrúm til frekari afskrifta

Sveinn Agnarsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, kynnti skýrsluna í dag. Mynd: Brynjólfur Þór Guðmundsson.

Svigrúm bankanna til skuldaniðurfellingar er fullnýtt að mati Hagfræðistofnunar. Leið Hagsmunasamtaka heimilanna til að lækka skuldir myndi kosta 200 milljarða.

Forsætisráðherra fól Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í október síðastliðnum að meta svigrúm bankanna til afskrifta á húsnæðislánum almennings, og meta þær leiðir sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa lagt til. Niðurstaða stofnunarinnar var kynnt í dag og er viðbúið að hún valdi þeim vonbrigðum sem höfðu gert sér vonir um frekari niðurfellingar skulda.

„Það sem við teljum er að þegar íbúðarlánin voru færð yfir í nýju bankana hafi myndast niðurfærslur sem nema 95 milljörðum króna,“ segir Sveinn Agnarsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. „Ef litið er til þess sem bankarnir hafa nú þegar gert var það í lok október 144 milljarðar króna, hvað varðar niðurfærslur vegna íbúðarlána. Miðað við það er ekki svigrúm til frekari niðurfærslna á þessum grunni.“

Í skýrslunni er lýst efasemdum um hvort leiðir sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa lagt til standist lög en talið er að þær leiðir yrðu dýrar og kostnaður sem gæti numið 200 milljörðum króna myndi falla á ríkissjóð.

Sveinn telur niðurstöðurnar ekki gefa tilefni til almennrar skuldaniðurfærslu. „Ég held að svarið hérna hljóti að vera að við förum svipaðar leið og hefur verið gert annars staðar erlendis þar sem bankar og þeir sem hafa tekið lán reyna saman að ráða fram úr sínum málum og nota það svigrúm sem í bönkunum er.“

Andrea Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, gefur lítið fyrir útreikninga stofnunarinnar og gagnrýnir fleiri þætti skýrslunnar. „Svo fara þeir í vangaveltur um eignarréttarákvæði stjórnarskrár og lagatúlkanir og hvort okkar leiðir geti staðist lög. Við gerum okkur fulla grein fyrir að það þarf sérstaka lagasetningu til að fara í svona stóra efnahagslega aðgerð eins og við erum að fara fram á en það er bara pólitískur vilji og forysta sem þarf til þess.“

Skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ (pdf)
Athugasemdir Hagsmunasamtaka heimilanna við drög að skýrslunni (pdf)

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku