Ekki mótfallinn Kanadadal

Steingrímur J. Sigfússon


  • Prenta
  • Senda frétt

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að þó svo að það sé ekki á stefnuskrá stjórnvalda að taka upp myntsamstarf við Kanadamenn sé það ekki fráleit hugmynd að tengjast Kanadadal einhliða eða með tvíhliða samkomulagi.

Efnahags- og viðskiptaráðherra og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, er nýkominn frá Kanada. Hann segir að erindið hafi verið að ræða við bankamenn, ráðherra og þingmenn einkum um bankalöggjöf og eftirlit með fjármálamarkaði. Skynsamlegt sé að efla viðskiptaleg og pólitísk tengsl við Kanada.

Steingrímur segir að þó svo að ekki tvíhliðamyntsamstarf sé ekki á stefnuskrá stjórnvalda og hafi ekki verið á dagskrá fundanna, hafi málið borið á góma. Það sé eitthvað sem liggi langt inni í framtíðinni að menn fari að velta fyrir sér einhliða eða tvíhliða samstarfi um upptöku annarrar myntar. Ekki sé útilokað að taka upp Kanadadollar, en það sé ekki verið að greina núna.

Annað hvort verði krónan til lengri framtíðar eða að hér verði tekin upp evra. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, hefur sagt að óraunhæft sé að taka upp Kanadal og fjármálaráðherra sagði nýlega að slíkt væri óðs manns æði. Steingrímur er ekki jafn fráhverfur hugmyndinni. Vissulega hafi verið uppi hugmyndir um að tengjast stærri mynt, einhliða eða hugsanlega með tvíhliða samkomlagi. Þá hafi menn nefnt bæði norsku krónuna og Kanadadollar. Og um hann sem slíkan geti hann sagt að hann sé ekki fráleitur kostur. Að mörgu leiti ekki vitlaus miðað við það hversu vel þeir hafi haldið á málum, en það sé bara allt önnur nálgun á þessum málum og ekki komin á dagskrá.


Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku