Ekki lengur opið að næturlagi

Safnmynd.
Forsvarsmenn Nóatúns hafa ákveðið að hætta að vera með verslanir sínar opnar að næsturlagi. Þetta segja þeir að sé gert vegna launahækkana og þess að aðrar kostnaðarhækkanir séu í farvatninu.
Sólarhringsopnun verslana Nóatúns hófst í mars 2010. Nú verður búðum hins vegar lokað á miðnætti og þær opnaðar á ný klukkan átta að morgni. Í fréttatilkynningu frá Nóatúni segir að forsenda fyrir næturopnun hafi verið sú að lengri opnunartími leiddi ekki til verðlagshækkana og það hafi staðist hingað til. Nýir kjarasamningar hafi leitt til þess að launakostnaður hafi hækkað veruleg og útlit sé fyrir aðrar hækkanir.
Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatúns, segir að næturopnunin hafi komið vel út fjárhagslega á sínum tíma. Álag á afgreiðslu hafi verið minna eftir miðnætti og fram á morgun en á öðrum tímum en á móti hafi verið hægt að nýta tímann til almennra verslunarstarfa. Nú séu hins vegar ekki forsendur fyrir þessu lengur vegna hækkandi kostnaðar og því hafi verið ákveðið að hætta við næturopnun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







