Hann bendir á að Lýsing hafi ekki gert neina varakröfu og því sé ekki tekið fram í dóminum hvað eigi að koma í staðinn fyrir gengistrygginguna. Nú muni málsvarnir fjármálafyrirtækjanna snúast um það hvað það eigi að vera. Hann telur þó að dómurinn breyti samningsstöðunni. Nú þurfi lántakendur ekki að sanna rétt sinn heldur þurfi fjármálafyrirtækin að verja það að þau leiðrétti ekki lánin.
Hann segir mikið gleðiefni að þessi dómur hafi fallið á þennan veg. En minnir á að dómur hafi fallið á hinn veginn í desember. En nú hafi þessi dómari túlkað lögin þannig að gengistrygging sé eitt form af verðtryggingu og óheimil sem slík. Vilji löggjafans í þessu efni komi fram í greinargerð með lögunum.
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í gær úrskurð um að tenging lána við gengi erlendra gjaldmiðla væri verðtrygging samkvæmt lögum frá 2001 og því óheimil. Dómurinn sýknaði kaupanda bifreiðar, og ábyrgðarmann hans, af kröfu Lýsingar hf um að þeir greiddu gengistryggðar eftirstöðvar kaupleigusamnings. Dómarinn telur einu gilda hvort eftirlitsaðiljar á borð við Seðlabanka og Fjármálaeftirlit hafi ekki gert athugasemdir við gengistryggingu lána, vilji löggjafans hafi verið skýr. Heimildir til að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla hafi verið felldar niður 2001.
Lýsing höfðaði málið gegn manni sem átti eftir að greiða eftirstöðvar af myntkörfuláni sem Lýsing gerði við hann vegna kaupa á jeppabifreið. Samningsfjárhæðið var bundin myntkörfu þar sem USD skyldi hafa 15% vægi, JPY 10%, EUR 20%, CHF 5% og ÍSK 50% vægi.
Niðurstaða héraðsdóms er að samningurinn hafi verið lánasamningur en ekki kaupleigusamningur og að ekki megi verðtryggja lán sem veitt eru í íslenskum krónum öðru en neysluvísitölu. Því hafi Lýsingu verið óheimilt að gengistryggja lánið.
Í dómnum kemur fram að Lýsing hf sé sérfræðifyrirtæki um lánaviðskipti og beri því hallann af óskýrleika samningsins. Þá hafi fyrirtækið átt að sanna að lánið hafi verið veitt í erlendum gjaldmiðli.
Bifreiðakaupandinn og ábyrgðarmaður hans voru því sýknaðir af kröfum Lýsingar hf og Lýsingu gert að greiða málskostnað að upphæð 270.000,- krónur.
frettir@ruv.is